990 kr
Läs direkt efter köp
990 kr
Läs direkt efter köp
Behavioral Medicine's Perspective
773 kr
Skickas inom 7-10 vardagar
92 kr
Lyssna direkt efter köp
Hversu langt er hægt að ganga fyrir listina?
Listmálarinn Peter Wihl er að undirbúa stórsýningu á verkum sínum í tilefni af fimmtugsafmæli sínu þegar hann skyndilega missir sjónina. Óttasleginn gerir hann allt sem í sínu valdi stendur til að endurheimta hana og þar af leiðandi lífsviðurværi sitt - þar með talið að semja við djöfulinn sjálfan. En kostnaðurinn við þá afdrifaríku ákvörðun verður fljótt hærri en ágóðinn.
Bókin varpar fram siðferðislegum spurningum sem vekur lesanda til umhugsunar og með listilegum skrifum sínum tekst höfundi að flétta inn tilvísunum úr bókmenntaverkum eins og "Öndin villta" eftir Henrik Ibsen.
Lars Saabye Christensen (1953) er norsk/danskur rithöfundur og einn vinsælasti norski rithöfundurinn af sinni kynslóð. Hann hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir skrif sín og hefur verið aðlaður af bæði norsku og frönsku ríkisstjórnunum. Árið 2018 fékk hann Amanda kvikmyndaverðlaunin fyrir framlag sitt til norskrar menningar, en hann er einnig afkastamikill handritshöfundur.
92 kr
Lyssna direkt efter köp
Örlagasaga fjögurra kynslóða sem eru markaðar af átakanlegum atburði.
Veru Jebsen er nauðgað en hún segir engum frá, allt þar til Fred sonur hennar fæðist. Atburðurinn hefur afdrifarík áhrif á ævi Freds og fjölskyldu hans, en sagan er sögð frá sjónarhóli Barnum bróður hans. Inn í frásagnir Barnums af sérstöku sambandi þeirra bræðra tvinnast þroskasaga hans sjálfs og bréf langafa hans til langömmu hans frá Norður-Íshafinu og Grænlandi. Sagan segir jafnt frá bræðrunum og ævi formæðra þeirra, sem leiðir allt að sömu endalokunum. Inn í átakanlegan söguþráðinn tvinnast svo húmor höfundar, sem gerir lesandanum ómögulegt að leggja bókina frá sér.
Bókin hefur unnið til fjölda verðlauna, meðal annars bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, og verið gerð að vinsælli sjónvarpsþáttaröð, sem var tilnefnd til Prix Europa, evrópsku sjónvarpsverðlaunanna.
Lars Saabye Christensen (1953) er norsk/danskur rithöfundur og einn vinsælasti norski rithöfundurinn af sinni kynslóð. Hann hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir skrif sín og hefur verið aðlaður af bæði norsku og frönsku ríkisstjórnunum. Árið 2018 fékk hann Amanda kvikmyndaverðlaunin fyrir framlag sitt til norskrar menningar, en hann er einnig afkastamikill handritshöfundur.
Bókin fær 4,12 stjörnur af fimm mögulegum hjá notendum Goodreads.
69 kr
Lyssna direkt efter köp
Hermann er ósköp venjulegur 11 ára strákur. Fyrir utan eitt. Hann er að missa hárið.
Dag einn fer Hermann í klippingu sem hefur afdrifaríkar afleiðingar. Rakarinn tekur nefnilega eftir að Hermann er að verða sköllóttur. Alveg sköllóttur. En Hermann lætur það ekki á sig fá. Með einstöku ímyndunarafli sínu og skopskyni tekst Hermanni að takast á við lífið, bernskuna og það að fullorðnast. Í leiðinni kynnist lesandinn alls kyns skrýtnum og skemmtilegum persónum í þessari bráðskemmtilegu þroskasögu. Það sem situr eftir er einstakt hugarfar Hermanns í gegnum erfiðleika og áhrifin sem hann hefur á fólkið í kringum sig.
Kvikmynd með sama nafni var gerð eftir bókinni árið 1990 sem hefur unnið til ýmissa verðlauna.
Lars Saabye Christensen (1953) er norsk/danskur rithöfundur og einn vinsælasti norski rithöfundurinn af sinni kynslóð. Hann hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir skrif sín og hefur verið aðlaður af bæði norsku og frönsku ríkisstjórnunum. Árið 2018 fékk hann Amanda kvikmyndaverðlaunin fyrir framlag sitt til norskrar menningar, en hann er einnig afkastamikill handritshöfundur.
327 kr
Tillfälligt slut